Jón með Hljómsveitinni Jón
Posted by Stefán Vignir in Plögg on 6. júní 2011
Þetta tengist kannski ekki vefnum beint en vinir hjá framleiðslufyrirtækinu Illusion voru að gera þetta tónlistarmyndband. Skemmtileg hugmynd og glæsileg útfærsla.
Shopify ♥ ISK
Posted by Stefán Vignir in Shopify on 6. júní 2011
Yfirleitt sökkar það frekar mikið að nota erlendar hugbúnaðarlausnir í viðskiptum á Íslandi. Það eru oft einhverjar sérrelgur sem þarf að fara eftir, stundum er hugbúnaðurinn of Ameríku- eða ESB-væddur og stundum er bara blessuð krónan að þvælast fyrir. Ég reyndi t.d. að aðlaga kassakerfið Checkout að íslenskum aðstæðum fyrir nokkrum árum síðan og það gekk [...]
Shopify-hönnunin mín er nánast komin í loftið
Posted by Stefán Vignir in Hönnun, Verk on 5. júní 2011
Þá er maður [vonandi] loksins búinn með Shopify-þemuna sem ég hef verið að vinna í með smá pásum síðan í haust. Aðalhvatinn til að klára verkið var áskriftin að myndasafninu 123RF sem ég fékk í verðlaun frá vefhönnunar-blogginu Onextrapixel. Þannig gat ég sett inn fullt af skemmtilegum feik vörumyndum án þess að hella mér út [...]
Mbl um öryggi á vefnum
Posted by Stefán Vignir in Öryggismál on 31. maí 2011
Í morgun birti mbl.is innskot sem þeir kalla fréttaskýringu um öryggismál á vefnum. Þar er vitnað í Kristján Már Hauksson (sem á eitthvað fyrirtæki sem heitir Nordic eMarketing) en hann kemur t.d. fram með þau rök að það þurfi að vanda valið á vefumsjónarkerfum og að láta ekki hvern sem er vinna fyrir sig, en [...]
Að vinna með kennitölur í PHP (uppfært)
Posted by Stefán Vignir in Forritun, PHP on 3. maí 2011
Í þessum pistli mun ég fara í gegn um aðferðir og þumalputtareglur til að vinna með kennitölur í PHP. Flestir ættu að kunna að lesa fæðingardag og ár úr kennitölum einstaklinga, en kennitölur eru alls ekki svo einfaldar. Í ofanálagt getur verið kostnaður við hverja uppflettingu í Þjóðskrá, svo það getur borgað sig að yfirfara [...]
Trackback er sniðugt. Notum það.
Posted by Stefán Vignir in Opinn vefur on 2. maí 2011
Trackback-skeyti virka þannig í grunninn að ef einver skrifar bloggfærslu eða frétt sem vitnar í aðra, þá kemur það fram í þeirri færslu, ekki ósvipað því þegar Mbl.is leyfir Moggabloggurum að tengja sínar bloggfærslur við fréttir. Kosturinn sem Trackback hefur hins vegar fram yfir aðferðina sem mbl.is notar er sá að það virkar á milli [...]
DataMarket dömpar Flash
Posted by Stefán Vignir in Vefstaðlar on 30. apríl 2011
Á föstudaginn birtist áhugaverð færsla frá DataMarket á Twitter. „Flash, you’re dead to us now!“. Þeim tókst nefnilega að skipta Flash út fyrir kerfi sem þeir unnu úr frjálsu og opnu kerfi sem heitir Protovis. Þetta þýðir að í staðinn fyrir að reiða sig á lokað, leiðinlegt og óaðgengilegt kerfi eru þeir farnir að nota alvöru vefstaðla til að sýna flottar tölfræðiupplýsingar.
Áhugavert efni um QR og tvívíð strikamerki
Posted by Stefán Vignir in Hönnun, Strikamerki on 29. apríl 2011
Það er til fullt af efni um QR-merki á vefnum. Vandamálið er hins vegar að flestar færslurnar, sérstaklega þær íslensku fjalla einungis í örstuttu máli um hvað QR-merki eru og hvernig þau virka. Ég ákvað að fleyta rjómanum af þessu, sérstaklega til að sýna að QR-merki eru til margs annars brúkleg en að vísa í [...]
Flott myndskeið með sniðugum hugmyndum
Posted by Stefán Vignir in Hönnun, Strikamerki on 29. apríl 2011
QR-merki þurfa ekki að vera gagnslaus og ljót strikarmerki. Hér eru nokkur myndskeið, flest þeirra sniðugar hugmyndir sem væri gaman að vinna með.
Bestu tólin á vefnum til að búa til QR-merki
Posted by Stefán Vignir in Strikamerki on 27. apríl 2011
Í gær skrifaði ég um hvernig er best að búa QR-merki undir prent- og hönnunarvinnu. Pistillinn fékk gríðarlega góð viðbrögð og í framhaldi af því ákvað ég að fara í gegn um helstu og bestu veftólin til að vinna QR-merki og kynna þeirra helstu kosti og galla skoðaði í hvaða tilfellum þau henta helst.

